Leiðbeiningar

Hvað er þýðingarbragur?

Þýðingarbragur er á texta þegar hann hljómar eins og þýðing, oftast úr ensku. Orðin eru íslensk en orðalagið, setningaskipanin og hrynjandin eru ensk.

Hvernig þekkir þú þýðingarbrag?

Þú þekkir hann á orðasamböndum sem eru þýdd beint úr ensku, á nafnorðum þar sem íslenskan notar frekar sögn, og á markaðsmáli sem enginn segði upphátt.

Lestu meira um íslenskuna úr ChatGPT.

Algeng orðasambönd og hvað segja má í staðinn

Beint úr enskuEðlilegri íslenska
ná út til (e. reach out)hafa samband
taka á næsta stig (e. take to the next level)efla, bæta, ná lengra
í lok dagsins (e. at the end of the day)þegar öllu er á botninn hvolft
vertu viss um að (e. make sure to)mundu að, gættu þess að
ekki hika við að (e. don't hesitate to)endilega
hvert skref á leiðinni (e. every step of the way)alla leið, frá upphafi til enda
læra meira (e. learn more)kynna sér nánar, lesa meira
mæta þörfum þínum (e. meet your needs)koma til móts við þarfir þínar
gerir þér kleift að (e. enables you to)með … geturðu
á hverjum tíma (e. at all times)alltaf

Af hverju skiptir þýðingarbragur máli?

Lesendur finna þýðingarbraginn strax. Fyrirtæki sem talar eins og þýðing virðist fjarlægt og stundum ótraust, jafnvel þótt allt sem sagt er sé rétt.

Hvernig losnar þú við hann?

Besta ráðið er að spyrja sig hvernig maður myndi segja þetta við aðra manneskju. Íslenskan kýs sagnorð frekar en nafnorð, styttri setningar og hófstilltara orðalag en enskt markaðsmál. Hreinskrift finnur þessi atriði og lagar þau fyrir þig.

Spurt og svarað

Er þýðingarbragur málfræðivilla?
Nei. Texti getur verið hárréttur og samt hljómað eins og þýðing. Þess vegna finna stafsetningarforrit hann ekki.
Hvaðan kemur þýðingarbragur?
Hann kemur fram þegar þýtt er orð fyrir orð, þegar enskt orðasamband er fært beint yfir og þegar ensk setningaskipan fær að halda sér. Hann er algengur í texta frá gervigreind, í vélþýðingum og í markaðsefni sem er fyrst samið á ensku.

Losnaðu við þýðingarbraginn

Hreinskrift finnur þýðingarbraginn, endurskrifar textann á eðlilega íslensku og rökstyður hverja breytingu. Límdu textann inn á forsíðunni, án skráningar.

Laga textann
Hvað er þýðingarbragur? Einkenni, dæmi og hvernig þú losnar við hann – Hreinskrift