Atvinnuumsókn
Ferilskrá á íslensku
Góð ferilskrá er stutt, skýr og á eðlilegri íslensku. Hér er uppsetningin, orðalag sem virkar og hvernig þú breytir enskri ferilskrá í íslenska.
Uppsetning
- Nafn og samskiptaupplýsingar: sími, netfang og hvar þú býrð.
- Stutt kynning: tvær eða þrjár línur um hver þú ert og hvað þú vilt gera.
- Starfsreynsla: nýjasta starfið fyrst, með tímabili, vinnustað og helstu verkefnum.
- Menntun og námskeið sem skipta máli.
- Færni og tungumál.
- Meðmælendur, eða „veittir ef óskað er“.
Venjur í íslenskum ferilskrám
- Mynd og kennitala fylgja oft, þótt hvorugt sé skylda.
- Ein til tvær síður, nýjasta starfið fyrst og svo koll af kolli.
- Meðmælendur heita líka umsagnaraðilar.
- Prófgráður eru skrifaðar BA, BS eða MA, eða B.Sc. og M.Sc., eftir skólanum.
- Orðið er „ferilskrá“, ekki „ferilsskrá“.
Ensk ferilskrá yfir á íslensku
Límdu inn texta úr enskri ferilskrá. Þú færð hann á eðlilegri íslensku, og merkingin er borin saman við frumtextann.
Án skráningar. Textar úr ókeypis notkun eru geymdir án persónuupplýsinga og notaðir til að bæta þjónustuna.
Orðalag sem virkar
Bein þýðing úr ensku hljómar stirt í ferilskrá. Svona skrifa Íslendingar sömu atriðin.
| Bein þýðing | Eðlileg íslenska |
|---|---|
| Sterk samskiptahæfni og liðsmaður. | Á auðvelt með samskipti og vinn vel í hópi. |
| Ábyrgur fyrir að stjórna samfélagsmiðlum. | Sá um samfélagsmiðla fyrirtækisins. |
| Ástríðufullur um þjónustu við viðskiptavini. | Hef gaman af því að þjónusta fólk. |
Sjá líka kynningarbréf: dæmi og ráð.
Spurt og svarað
- Hversu löng á ferilskrá að vera?
- Ein til tvær síður. Nýjasta starfið fyrst, og eldri störf styttri.
- Á ég að hafa mynd?
- Það tíðkast víða á Íslandi en er ekki skylda. Ef þú hefur mynd skaltu velja einfalda og skýra.
- Get ég þýtt enska ferilskrá?
- Já. Límdu hana inn og Hreinskrift skrifar hana á eðlilega íslensku og ber merkinguna saman við frumtextann. Lestu hana svo yfir: starfsheiti og nöfn skóla þarf stundum að laga að íslenskri venju.
Lengri ferilskrá eða skjal?
Á forsíðunni geturðu sett inn Word- eða PDF-skjal. Hreinskrift sýnir hverja breytingu.
Opna Hreinskrift