Svona virkar Hreinskrift
Skrifar eðlilega íslensku
Enska er ekki þýdd orð fyrir orð og stirð íslenska er umorðuð svo hún hljómi eins og Íslendingur hafi skrifað hana.
Les yfir
Stafsetning, beygingar og samræmi eru yfirfarin. Í yfirlestri helst orðalagið þitt.
Gætir merkingarinnar
Textinn er þýddur til baka og borinn saman við þinn. Tölur, dagsetningar, nöfn og lagalegar skyldur eru athugaðar sérstaklega. Hafi merkingin breyst færðu að vita það.
Sýnir hverja breytingu
Þú sérð hvað breyttist og hvers vegna og ræður hvað þú notar. Með aðgangi geymist hvert verk í sögunni þinni.
Kennitölur, netföng, símanúmer og kortanúmer eru tekin út áður en textinn fer til mállíkansins.
FyrirÉg vildi bara ná til þín varðandi fundinn sem við áttum í síðustu viku. Ég er að hlakka til að heyra frá þér varðandi næstu skref.
EftirMig langaði rétt að heyra í þér vegna fundarins okkar í síðustu viku. Ég hlakka til að heyra frá þér um næstu skref.