Atvinnuumsókn

Kynningarbréf: dæmi og hvernig þú skrifar gott bréf

Kynningarbréfið er það fyrsta sem vinnustaðurinn sér frá þér. Hér sérðu hvað á að standa í því, dæmi um bréf og hvernig þú lagar bréf sem hljómar eins og þýðing.

Hvað á að standa í kynningarbréfi?

  1. Hvaða starf þú sækir um og hvar þú sást það auglýst.
  2. Hvað þú hefur fram að færa: tvö eða þrjú dæmi úr reynslu þinni sem tengjast starfinu, helst með tölum.
  3. Af hverju þessi vinnustaður: eitthvað sem sýnir að þú þekkir hann.
  4. Lokaorð: að þú hlakkir til að heyra frá þeim og hvenær þú getur komið í viðtal.

Dæmi um kynningarbréf

Góðan dag,

Ég sæki hér með um starf markaðsfulltrúa sem auglýst var á vef ykkar 3. október.

Undanfarin fjögur ár hef ég séð um samfélagsmiðla og fréttabréf lítillar kaffihúsakeðju. Á þeim tíma fjölgaði áskrifendum fréttabréfsins úr 2.000 í 9.000 og ég lærði að skrifa texta sem fólk les til enda.

Mig langar að starfa hjá ykkur vegna þess að þið leggið áherslu á vandað efni frekar en mikið magn, og það er einmitt sú vinna sem ég nýt mest.

Ég hlakka til að heyra frá ykkur og get komið í viðtal hvenær sem hentar.

Með kveðju,
Anna Jónsdóttir

Bréf úr ChatGPT? Lagaðu það hér

Bréf sem gervigreind skrifar eru oft full af enskum orðasamböndum: „ástríða fyrir“, „ná út til“ og „fullkominn kandídat“. Límdu bréfið inn og Hreinskrift skrifar það á eðlilega íslensku. Lestu það svo yfir og settu þín eigin dæmi inn.

0 / 2.000 stafir

Án skráningar. Textar úr ókeypis notkun eru geymdir án persónuupplýsinga og notaðir til að bæta þjónustuna.

Orðalag sem kemur upp um þýðingu

Við fórum yfir 602 íslenskar starfsauglýsingar. Orðin til vinstri koma beint úr ensku og íslenskir vinnustaðir nota þau varla. Orðin til hægri eru þau sem þeir nota í raun.

Beint úr enskuÍ íslenskum auglýsingum
teymisspilari (e. team player)hæfni til að vinna í teymi
athygli á smáatriðum (e. attention to detail)nákvæm vinnubrögð
hraðskreitt umhverfi (e. fast-paced environment)líflegur vinnustaður, undir álagi
að taka eignarhald á (e. take ownership)að bera ábyrgð á
ástríða fyrir (e. passion for)brennandi áhugi á

Algengar villur í auglýsingum og umsóknum: „leitum af“ í stað „leitum að“, „ferilsskrá“ í stað „ferilskrá“ og „sakarvottorð“ í stað „sakavottorð“.

Algeng mistök

  • Að endurtaka ferilskrána í stað þess að segja af hverju reynslan skiptir máli.
  • Sama bréfið til allra vinnustaða.
  • Stór orð án dæma, eins og „metnaðarfull“ og „lausnamiðuð“, sem allir nota.
  • Enskuskotið orðalag. Lestu bréfið upphátt: ef þú myndir ekki segja setninguna, breyttu henni.

Sjá líka ferilskrá á íslensku.

Spurt og svarað

Hversu langt á kynningarbréf að vera?
Ein síða í mesta lagi, oftast þrjár til fimm stuttar málsgreinar. Sá sem ræður í starfið les mörg bréf og kann að meta stutt.
Má nota ChatGPT til að skrifa kynningarbréf?
Já, sem uppkast. En bréf úr ChatGPT hljóma oft eins og þýðing úr ensku og eins og öll hin bréfin. Settu inn þín eigin dæmi og láttu Hreinskrift laga orðalagið.
Hver er munurinn á kynningarbréfi og ferilskrá?
Ferilskráin telur upp hvað þú hefur gert. Kynningarbréfið segir af hverju það skiptir máli fyrir þetta starf og þennan vinnustað.

Lagaðu bréfið þitt

Límdu bréfið inn á forsíðunni, án skráningar. Hreinskrift lagar orðalagið og sýnir hverja breytingu.

Opna Hreinskrift
Kynningarbréf: dæmi og hvernig þú skrifar gott bréf – Hreinskrift