Leiðbeiningar
ChatGPT á íslensku
ChatGPT skrifar málfræðilega rétta íslensku en hún hljómar oft eins og þýðing úr ensku. Hér er skýringin á því, algengustu einkennin og hvernig þú lagar textann.
Lagaðu ChatGPT-textann hér
Límdu inn texta frá ChatGPT eða annarri gervigreind. Hreinskrift lagar orðalagið, sýnir hverja breytingu og lætur góðan texta í friði.
Án skráningar. Textar úr ókeypis notkun eru geymdir án persónuupplýsinga og notaðir til að bæta þjónustuna.
Talar ChatGPT íslensku?
Já. ChatGPT skilur íslensku og skrifar hana, og það sama gildir um Claude og Gemini. Íslensk stjórnvöld unnu með OpenAI að því að bæta íslenskuna í GPT-4 árið 2023 og nýrri líkön skrifa málfræðilega rétta íslensku í flestum tilvikum. Vandinn er sjaldnast málfræðin heldur orðalagið: textinn hljómar eins og hann hafi verið hugsaður á ensku.
Hvernig læturðu ChatGPT svara á íslensku?
- Skrifaðu spurninguna á íslensku. ChatGPT svarar yfirleitt á því máli sem þú skrifar á.
- Ef svarið kemur samt á ensku skaltu bæta við „Svaraðu á íslensku“.
- Til að þurfa ekki að biðja um það í hvert sinn geturðu sett „Svaraðu alltaf á íslensku“ í sérsniðnar leiðbeiningar (e. custom instructions) í stillingum ChatGPT.
Af hverju hljómar íslenskan eins og þýðing?
Mállíkön á borð við ChatGPT læra mestmegnis af enskum texta. Þegar þau skrifa á íslensku raða þau íslenskum orðum í enska setningagerð og nota ensk orðasambönd. Orðin eru vissulega íslensk en hugsunin að baki þeim er ensk. Þetta er kallað þýðingarbragur.
Lesandinn finnur þetta á sér þótt hann geti kannski ekki bent á neina eina villu. Textinn er réttur en hljómar einfaldlega ekki eins og lifandi manneskja hafi samið hann, og það dregur úr trausti.
Algengustu einkennin
- Beinar þýðingar á enskum orðatiltækjum, eins og „ná út til“ (e. reach out) og „taka á næsta stig“.
- Markaðsmál sem enginn Íslendingur myndi nota, til dæmis „knúið af ástríðu“.
- Óþarflega þungt orðalag, eins og „gerir þér kleift að“ í stað einfaldrar sagnar.
- Of mörg loforð í sama textanum.
Dæmi: fyrir og eftir
Setningar sem einkenna gervigreindartexta og hvernig Hreinskrift skrifaði þær upp á nýtt.
| Fyrir | Eftir |
|---|---|
| Vertu viss um að ná út til okkar ef þú hefur einhverjar spurningar. | Endilega hafðu samband ef einhverjar spurningar vakna. |
| Við erum spennt að taka fyrirtækið þitt á næsta stig. | Við hlökkum til að hjálpa þér að efla reksturinn. |
| Lausnin okkar gerir þér kleift að spara tíma og peninga. | Með lausninni okkar spararðu bæði tíma og fé. |
| Smelltu hér til að læra meira um tilboðin okkar. | Smelltu hér til að kynna þér tilboðin okkar nánar. |
Hvernig færðu betri íslensku úr ChatGPT?
- Biddu ChatGPT um að skrifa beint á íslensku en ekki að þýða enskan texta.
- Láttu fylgja dæmi um texta sem þú vilt að svarið líkist.
- Biddu um styttri setningar og færri lýsingarorð.
- Lestu textann upphátt. Ef þú myndir aldrei segja setninguna við aðra manneskju er hún líklega þýðing.
- Eða láttu Hreinskrift lesa textann yfir. Þá sérðu hverja breytingu og af hverju hún var gerð.
Spurt og svarað
- Hvernig læt ég ChatGPT svara á íslensku?
- Skrifaðu á íslensku eða bættu við „Svaraðu á íslensku“. Í stillingum ChatGPT geturðu sett það í sérsniðnar leiðbeiningar svo það gildi í öllum spjöllum.
- Getur ChatGPT skrifað góða íslensku?
- Oft já, sérstaklega í stuttum og einföldum texta. Í markaðsefni og lengri texta er þýðingarbragurinn algengastur.
- Virkar gervigreind á íslensku?
- Já, stærstu líkönin skrifa málfræðilega rétta íslensku. Vandinn er að hún hljómar oft eins og þýðing: enskar setningar með íslenskum orðum. Hreinskrift lagar það og lætur texta sem er þegar á góðri íslensku í friði.
- Breytir Hreinskrift merkingu textans?
- Ekki án þess að þú sjáir það. Hver breyting er sýnd og merkingin er borin saman við frumtextann. Finni samanburðurinn merkingarmun í íslenskum texta færðu frumtextann aftur. Þýðingu reynir Hreinskrift aftur, og takist ekki að staðfesta merkinguna er þér sagt það berum orðum.
- Er hægt að nota Hreinskrift inni í ChatGPT?
- Það er væntanlegt. Nú þegar geturðu notað Hreinskrift í Claude, Claude Code, Cursor og Codex.
Láttu Hreinskrift lesa yfir
Límdu ChatGPT-textann inn á forsíðunni, án skráningar. Hreinskrift endurskrifar hann á eðlilega íslensku, sýnir hverja breytingu með rökum og ber merkinguna saman við frumtextann.
Laga textann