Samanburður
Málfríður eða Hreinskrift?
Málfríður frá Miðeind og Hreinskrift lesa báðar yfir íslenskan texta, en þær eru smíðaðar fyrir ólík verk. Hér eru mælingar okkar á báðum, líka þar sem Málfríður stendur sig betur.
Ólík verkfæri
Málfríður er villuleiðréttir: líkan sem Miðeind þjálfaði á íslenskum villum og leiðréttir stafsetningu, beygingar og greinarmerki. Hún beitir leiðréttingunum strax.
Hreinskrift gerir tvennt. Yfirlesturinn lagar villur og býður leiðréttingar sem skipta orði út fyrir annað sem tillögur. „Bæta textann“ endurskrifar texta sem hljómar eins og þýðing eða gervigreind á eðlilega íslensku og þýðir úr ensku. Merkingin er alltaf borin saman við frumtextann og hver breyting er sýnd.
Það sem mælingarnar sýna
Mælingar okkar frá október 2026, sömu textar og sami mælikvarði fyrir báðar.
| Mæling | Málfríður | Hreinskrift |
|---|---|---|
| Villur lagaðar | 69% | 41% |
| Réttum setningum breytt | 16 | 5 |
| Rangar leiðréttingar | 24 | 13 |
| Þýðingarbragur | Óbreyttur | Lagaður |
Villurnar eru úr prófhluta Íslensku villumálheildarinnar (ritgerðir nemenda, fréttir og Wikipedia). Málfríður finnur greinilega fleiri villur, einkum í hástöfum, orðaskilum og stafsetningu. Í samræmi, falli og beygingu munar litlu. Hreinskrift breytir sjaldnar því sem var rétt.
Hvort á ég að nota?
- Málfríði ef þú skrifaðir textann sjálf eða sjálfur og vilt að sem flestar stafsetningarvillur finnist.
- Hreinskrift ef textinn kemur úr ChatGPT eða er þýddur úr ensku og hljómar ekki eðlilega, ef góður texti á að standa óbreyttur, ef þú vilt sjá skýringu á hverri breytingu, eða ef þú þarft íslensku inni í Claude eða eigin forriti.
Sjá líka yfirlestur, þýðingarbrag og prófarkalestur.
Spurt og svarað
- Hvort finnur fleiri villur?
- Málfríður. Á 300 setningum með raunverulegum villum lagaði Málfríður 69% villnanna en Hreinskrift bauð leiðréttingu á 41%. Munurinn liggur mest í hástöfum, orðaskilum og stafsetningu.
- Hvort breytir góðum texta síður?
- Hreinskrift. Af 100 réttum setningum breytti Málfríður 16 en Hreinskrift 5, og Hreinskrift beitir engri leiðréttingu sem skiptir orði út fyrir annað nema þú samþykkir hana.
- Lagar Málfríður texta sem hljómar eins og þýðing?
- Nei, Málfríður er villuleiðréttir. Í prófunum okkar lét hún málfræðilega réttan texta með þýðingarbrag óbreyttan. Hreinskrift endurskrifar slíkan texta á eðlilega íslensku þegar þú velur „Bæta textann“.
- Má nota báðar?
- Já. Margir láta villuleiðrétti fara yfir eigin texta og nota Hreinskrift á texta úr ChatGPT eða þýðingar.
Prófaðu Hreinskrift á þínum texta
Án skráningar, allt að 2.000 stafir í einu. Hver breyting er sýnd með skýringu.
Lesa yfir