Söfn

Orðakistan

Safn orða sem Íslendingar nota í raun. Hreinskrift finnur orðin í textanum þínum sem má orða betur, sækir betri orð í Orðakistuna og skilar betri texta.

Textinn þinn

We're looking for a team player with strong communication skills and a positive attitude. Full-time position, flexible working hours. Reach out to us to apply.

Orðakistan
  • Starfsauglýsingarfull-time: fullt starf
  • Starfsauglýsingarflexible working hours: sveigjanlegur vinnutími
  • Þýðingarbragurreach out: hafa samband
Á íslensku

Við leitum að manneskju sem á auðvelt með að vinna í teymi, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur jákvætt hugarfar. Um er að ræða fullt starf og boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma. Hafðu samband við okkur til að sækja um.

Hvað er í kistunni?

  • Orð í forritum og á vefjum6.000 orð og setningar, eins og Vista, Skrá út og StillingarSave changes → Vista breytingar
  • Staðir á Íslandi232 staðir með beygingum og á/íÍsafjörður → á Ísafirði, til Ísafjarðar
  • Lönd og svæði290 heitiGermany → Þýskaland
  • Tungumál560 heitiFinnish → finnska
  • Gjaldmiðlar og mælieiningar460 heitiKilometers → kílómetrar (km)
  • Borgir heimsins350 heitiCopenhagen → Kaupmannahöfn
  • Mánuðir og vikudagarmeð skammstöfunumFeb → feb.
  • Orðalag eftir sviðumstarfsauglýsingar, uppskriftir, netverslun og fleiraFull-time → fullt starf
  • Þýðingarbragur29 stirð orðasamböndná út til → hafa samband
  • Orðatiltæki1 orðatiltæki, staðfært á íslenskunot my first rodeo → ekki mínar fyrstu réttir

Hvað er þýðingarbragur?

Orðalag sem verður til þegar enska er þýdd beint hljómar oft undarlega á íslensku. Hér eru dæmi og orðin sem fara betur.

ForðastuSkrifaðu frekar
ná út tilEkki notaSkrifaðu frekarhafa sambandBein þýðing á „reach out“. Á íslensku höfum við samband.
taka á næsta stigEkki notaSkrifaðu frekarefla, bæta eða ná lengraEnsk líking. Segðu frekar hvað batnar.
vertu viss um aðEkki notaSkrifaðu frekarmundu að eða gættu þess aðBein þýðing á „make sure“.
gera viss umEkki notaSkrifaðu frekartryggja eða ganga úr skugga um„Gera viss“ er ekki íslenska.
ekki hika við aðEkki notaSkrifaðu frekarendilegaEnskt kurteisisorðalag. „Endilega“ segir það sama, hlýlegar.
Vinsamlegast …Ekki notaSkrifaðu frekarsleppa þvíOft óþarft fremst í stuttum fyrirmælum. „Please“ þarf ekki alltaf að þýða.
Sýna öll (29)
ForðastuSkrifaðu frekar
í lok dagsinsEkki notaSkrifaðu frekarþegar öllu er á botninn hvolft eða þegar upp er staðiðEnsk líking, ekki um daginn sjálfan.
hvert skref á leiðinniEkki notaSkrifaðu frekaralla leið eða frá upphafi til endaBein þýðing á ensku orðasambandi.
læra meiraEkki notaSkrifaðu frekarkynna sér nánar eða lesa meiraÁ hnappi og í tengli segjum við „Lesa meira“ eða „Kynna sér málið“.
gerir þér kleift aðEkki notaSkrifaðu frekarmeð … geturðu eða þú geturÞungt orðalag fyrir einfalda sögn.
taka staðEkki notaSkrifaðu frekarfara fram eða eiga sér stað„Take place“ heitir „fara fram“ á íslensku.
í röð tilEkki notaSkrifaðu frekartil að eða til þess aðOrðrétt þýðing á „in order to“.
knúið afEkki notaSkrifaðu frekarbyggt á eða notarBein þýðing á „powered by“. Segðu frekar hvað varan gerir.
eru velkomin að taka þáttEkki notaSkrifaðu frekarAllir eru velkomnir eða Öllum er velkomið að taka þáttBein þýðing á „welcome to“.
komdu og upplifðuEkki notaSkrifaðu frekarKomdu á … eða Vertu með okkur á …Markaðsmál úr ensku.
kvöldið býður upp áEkki notaSkrifaðu frekarUm kvöldið verður … eða Þar verður …Bein þýðing. Segðu frekar hvað verður á dagskrá.
óhikað aðEkki notaSkrifaðu frekarendilega eða þér er velkomið aðBein þýðing á „feel free to“.
við erum spennt aðEkki notaSkrifaðu frekarvið hlökkum til að eða það gleður okkur aðEnsk tilfinningaorðræða úr markaðstexta.
ástríðufullur umEkki notaSkrifaðu frekarhefur brennandi áhuga áBein þýðing á „passionate about“.
ábyrgur fyrir aðEkki notaSkrifaðu frekarsá um eða hafði umsjón meðÍ ferilskrá segjum við hvað við gerðum.
fullkominn kandídatEkki notaSkrifaðu frekarég tel mig henta vel í starfið„Kandídat“ og „fullkominn“ saman er ensk ferilskrárklisja.
sterk samskiptahæfniEkki notaSkrifaðu frekará auðvelt með samskiptiEnsk upptalning; á íslensku lýsum við því sem við gerum.
Eigðu góðan dagEkki notaSkrifaðu frekarHafðu það gott eða Góða helgiÍ lagi í spjalli, en hljómar þýtt í formlegum texta.
staðreyndaprófaEkki notaSkrifaðu frekarsannreynaNýyrði búið til úr ensku.
Hvernig það virkarEkki notaSkrifaðu frekarSvona virkar [nafn vörunnar], Svona virkar þjónustan eða Svona virkar þettaEnsk orðaröð („how it works“) í fyrirsögn eða á hnappi. Best er nafn vörunnar: „Svona virkar Altalandi“; fleirtölunafn tekur fleirtölu: „Svona virka Opin gögn“. Inni í setningu er orðaröðin rétt: „Ég skil hvernig það virkar.“
Svona virkar þaðEkki notaSkrifaðu frekarSvona virkar [nafn vörunnar], Svona virkar þjónustan eða Svona virkar þetta„Það“ hljómar þýtt í fyrirsögn. Best er nafn vörunnar („Svona virkar Altalandi“), annars „Svona virkar þetta“.
Hvað kostar það?Ekki notaSkrifaðu frekarHvað kostar [það sem er selt]?, Hvað kostar þýðingin? eða Hvað kostar áskriftin?Á vef vísar „það“ ekki í neitt: nefndu það sem kostar („Hvað kostar þýðingin?“). Í samtali, þar sem „það“ vísar í það sem var nefnt („nuddið“), er spurningin eðlileg.
Hvernig virkar það?Ekki notaSkrifaðu frekarHvernig virkar [nafn vörunnar]?, Svona virkar [nafn vörunnar] eða Hvernig virkar þjónustan?Á vef vísar „það“ ekki í neitt: nefndu það sem virkar („Hvernig virkar Altalandi?“) eða notaðu „Svona virkar [nafn vörunnar]“. Í samtali er spurningin eðlileg.
Hvernig þetta virkarEkki notaSkrifaðu frekarSvona virkar [nafn vörunnar] eða Svona virkar þjónustanEnsk orðaröð („how this works“) í fyrirsögn eða á hnappi. Nefndu vöruna: „Svona virkar Altalandi“. Inni í setningu er orðaröðin rétt: „Ég skil hvernig þetta virkar.“

Meira um þýðingarbrag

Fyrir forritara

Láttu gervigreindina fletta upp
Þú: Notaðu Orðakistuna og þýddu textana í appinu mínu.
Gervigreindin: Þetta eru orðin sem íslensk forrit nota:
Úr Orðakistunni
  • Settings →Stillingar
  • Save changes →Vista breytingar
  • Cancel →Hætta við
  • Notifications →Tilkynningar
  • Sign out →Skrá út
Settu þetta upp einu sinni í Claude Code, Cursor eða Codex. Eftir það segirðu bara „notaðu Orðakistuna“.
Claude Code
claude mcp add hreinskrift -s user -- npx -y hreinskrift-mcp@latest
Úr eigin kóða: allt að 200 textar í einu. Það sem finnst ekki geturðu sent áfram í þýðingu.
API
curl https://hreinskrift.is/api/v1/hnappasafn \
  -H "Authorization: Bearer $HREINSKRIFT_KEY" \
  -H "content-type: application/json" \
  -d '{"strings": ["Save changes", "Germany", "Akureyri"]}'
Í MCP heitir verkfærið lookup_icelandic_ui_strings. Lyklana finnurðu á stjórnborðinu.

Spurt og svarað

Af hverju ekki bara þýða?
Þýðing gefur rétta íslensku, en kistan gefur það sem Íslendingar eru vanir að sjá: sömu orð og í öðrum forritum, rétta beygingu staðarnafns og rétta forsetningu, á eða í. Svarið kemur strax.

Tengdu Hreinskrift

Settu Hreinskrift upp í Claude Code, Cursor eða Codex og láttu gervigreindina fletta upp heilu listunum í einu.

Uppsetning