Yfirlestur

Prófarkalestur með gervigreind

Hreinskrift les yfir íslenskan texta á örfáum sekúndum, lagfærir orðalag sem hljómar eins og þýðing og rökstyður hverja breytingu. Hér sérðu hvað það kostar og hvenær þú þarft samt prófarkalesara af holdi og blóði.

Hvað gerir Hreinskrift?

Hreinskrift hefur tvær stillingar. Prófarkalesa lagar villur og ekkert annað: stafsetningarvillur, greinarmerki og orðabil eru leiðrétt strax, en málfræðileiðréttingar sem skipta einu orði út fyrir annað færðu sem tillögur sem þú samþykkir með einum smelli. Góður texti stendur óbreyttur.

Bæta textann gengur lengra. Það bætir málfarið, orðavalið og setningaskipanina, fjarlægir þýðingarbrag og sníður málsniðið að tilefninu, hvort sem textinn á að vera formlegur, hlutlaus eða hlýlegur.

Hverri breytingu fylgir rökstuðningur, svo þú sérð nákvæmlega hvað var lagfært og hvers vegna. Merkingin er borin saman við frumtextann, og finnist merkingarmunur færðu frumtextann aftur.

Þú ræður hvaða tillögur eru notaðar. Hreinskrift finnur ekki allar villur, svo lestu mikilvægan texta yfir áður en hann fer frá þér.

Verð

  • 6.500 stafir á dag fylgja hverjum aðgangi (um 1 grein), nema í hágæðaritun.
  • Umfram það kostar yfirlestur á A4-síðu um 32 kr. og greiðist af inneign.
  • Engin binding. Sjá nánar í verðskránni.

Hreinskrift eða prófarkalesari?

AtriðiHreinskriftPrófarkalesari
HraðiNokkrar sekúndurDagar, eftir umfangi
HentarVefsíður, markaðsefni, tölvupóstar, vörulýsingar og texti frá gervigreindBækur, lagatexti og annað sem fer á prent
BreytingarAllar sýndar með rökumEftir vinnulagi hvers og eins

Spurt og svarað

Lagar Hreinskrift stafsetningarvillur?
Já. Veldu „Prófarkalesa“: þá lagar Hreinskrift stafsetningarvillur, greinarmerki og orðabil og stingur upp á málfræðileiðréttingum, svo sem á falli og samræmi, sem þú samþykkir eða hafnar. Annað í textanum stendur óbreytt.
Hver er munurinn á „Prófarkalesa“ og „Bæta textann“?
Prófarkalestur lagar aðeins villur og heldur orðalaginu þínu. „Bæta textann“ endurskrifar texta sem hljómar eins og þýðing eða gervigreind svo hann lesist eins og Íslendingur hafi skrifað hann, en lætur góðan texta í friði.
Getur Hreinskrift lesið yfir enskan texta?
Nei. Hreinskrift þýðir enskan texta á eðlilega íslensku en les ekki yfir texta sem á að vera á ensku.
Hvenær þarf ég prófarkalesara?
Prófarkalesari af holdi og blóði er besti kosturinn fyrir bækur, lagatexta og annað sem fer á prent eða þarf að standast nákvæma skoðun.

Prófarkalestu textann þinn

Límdu textann inn á forsíðunni, án skráningar. Þú getur líka notað Hreinskrift í Claude eða gegnum API.

Prófarkalesa
Prófarkalestur með gervigreind: yfirlestur og verð – Hreinskrift