Persónuvernd
Hvaða gögn við vinnum með
Síðast uppfært 20. október 2026.
Ábyrgðaraðili
Fyrirspurnir og beiðnir um gögn, leiðréttingu eða eyðingu sendir þú á netfangið hér að neðan.
DB consulting ehf. · kt. 600722-1070 · hallo@hreinskrift.is
Textinn þinn og textabankinn
Textinn sem þú sendir fer til mállíkansins sem vinnur verkið. Hvaða aðilar það eru og hvar þeir starfa kemur fram í kaflanum Hverjir vinna með gögnin og hvar.
Texti úr ókeypis notkun er geymdur. Textar sem þú sendir án endurgjalds, á forsíðunni án innskráningar eða innan ókeypis dagskammts aðgangsins, eru geymdir í textabanka ásamt niðurstöðunum. Við notum bankann til að bæta þjónustuna: til að fara yfir og leiðrétta þýðingar, prófa nýjar útgáfur og þjálfa og stilla líkönin sem Hreinskrift notar.
Persónuupplýsingar eru fjarlægðar. Áður en texti fer í bankann skiptum við kennitölum, netföngum, símanúmerum, kortanúmerum, reikningsnúmerum og API-lyklum út fyrir merki á borð við [kennitala], og nöfnum fólks og heimilisföngum út fyrir [nafn] og [heimilisfang]. Nöfnin þekkjum við í öllum beygingarmyndum. Ef ekki tekst að yfirfara textann er hann ekki geymdur. Engin sjálfvirk leit er þó fullkomin, svo sendu ekki viðkvæmar persónuupplýsingar í ókeypis notkun.
Þú getur afþakkað. Veldu „Ekki geyma“ undir textareitnum á forsíðunni (vafrinn man valið) eða „Ekki geyma texta úr ókeypis notkun“ undir Stillingum; sú stilling gildir um allan aðganginn, líka API-ið og skipanalínuna. Í einstöku API-kalli sendir þú "contribute": false.
Texti úr greiddri notkun fer ekki í textabankann. Textar sem greitt er fyrir af inneign fara ekki í bankann nema þú leyfir það sérstaklega, í stillingunum eða með "contribute": true. Þeir eru þó geymdir í sögu verka eins og allir aðrir textar.
Lagagrundvöllur og varðveisla. Geymsla texta úr ókeypis notkun byggir á lögmætum hagsmunum Hreinskriftar af því að bæta þjónustuna (f-liður 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar, sbr. lög nr. 90/2018), og þú getur andmælt henni hvenær sem er eins og lýst er að ofan. Geymsla sem þú leyfir sérstaklega byggir á samþykki þínu. Textum er eytt úr bankanum eftir þrjú ár. Þú getur beðið um að tilteknum texta verði eytt fyrr með því að senda okkur auðkenni beiðninnar (byrjar á r_). Geymsla texta úr ókeypis notkun nær til texta sem sendir eru frá og með 7. október 2026; eldri textar voru ekki geymdir nema með samþykki.
Texti sem þú sendir í gegnum tengingarnar við ChatGPT og Claude er ekki geymdur í textabankanum, jafnvel þótt þú hafir leyft textageymslu annars staðar í aðganginum. Við skráum notkun og varðveitum aðgerðaauðkenni og fingrafar inntaksins til að koma í veg fyrir tvöfalda vinnslu og gjaldfærslu. Fingrafarið er reiknað með leynilykli; hvorki inntakið né niðurstaðan er geymd til að endursenda við endurtekna beiðni. Inntakið og niðurstaðan eru þó geymd í sögu verka. Mállíkanaveitur vinna samt með textann eins og lýst er að ofan.
Saga verka
Frá og með 13. október 2026 eru textinn sem þú sendir og niðurstaðan geymd með aðganginum þínum þar til þú eyðir þeim, ásamt því sem gert var við textann, kostnaðinum og ákvörðunum þínum og teymisins um niðurstöðuna. Þetta gildir um allar leiðir: vefinn, API-ið, skipanalínuna og tengingar á borð við ChatGPT og Claude.
Aðeins þú og teymið þitt sjáið þessi gögn. Þau eru ekki notuð til að þjálfa eða bæta Hreinskrift; um það gilda eingöngu reglur textabankans hér að ofan.
Þú getur eytt texta einstaks verks á síðu verksins, eða slökkt á sögu verka undir Stillingum; þá eru aðeins tölur og ákvarðanir geymdar. Einstakt kall má líka senda án þess að textinn sé geymdur: með „Ekki geyma textana mína“ á vefnum, --no-store í skipanalínunni eða "contribute": false í API-inu. Sé aðganginum eytt er sögu verkanna eytt með honum.
Lagagrundvöllur. Saga verka er hluti af þjónustunni sem þú notar, svo að þú getir skoðað, samþykkt og leiðrétt það sem Hreinskrift skilaði, og byggir því á samningnum við þig.
Hverjir vinna með gögnin og hvar
Hreinskrift keyrir á netþjónum Hetzner í Helsinki í Finnlandi, innan EES. Eftirtaldir þjónustuaðilar vinna með gögn fyrir okkur, hver aðeins með það sem hann þarf til síns verks:
- OpenRouter (í Bandaríkjunum) kemur textanum til mállíkansins sem vinnur verkið. Líkönin eru frá Google, OpenAI, Anthropic og DeepSeek. Við biðjum OpenRouter um að senda textann eingöngu til veitna sem samkvæmt skilmálum sínum hvorki safna honum né nota hann til þjálfunar.
- TypeSafe fær sýnishorn úr textanum, allt að 3.000 stafi, þegar þú lætur bæta eða þýða texta. Það greinir hvers konar texti þetta er og á hvaða sviði, svo að rétti tónninn og réttu íðorðin séu notuð. Prófarkalestur fer ekki þangað.
- Postmark (í Bandaríkjunum) sendir tölvupóst frá okkur, til dæmis staðfestingu á netfangi og hlekk til að velja nýtt lykilorð. Postmark fær netfangið og efni póstsins.
- Cloudflare tekur við pósti sem sendur er á netföng Hreinskriftar og áframsendir hann til okkar.
- Kling sér um greiðslur, sjá Greiðslur.
- Google sér um innskráningu með Google ef þú velur hana, og Google Analytics ef þú leyfir það, sjá hér að neðan.
- Telegram er notað til að senda okkur tilkynningu þegar aðgangur er stofnaður eða greiðsla tekst. Í henni er notandanafnið og, við greiðslu, upphæðin, en aldrei netfang, kortaupplýsingar eða texti.
Persónuupplýsingar eru fjarlægðar fyrst. Áður en texti er sendur til OpenRouter eða TypeSafe skiptum við út kennitölum, netföngum, símanúmerum, kortanúmerum, reikningsnúmerum og heimilisföngum fyrir staðgengla, og sömuleiðis lyklum og lykilorðum annarra þjónusta sem leynast í texta eða kóða. Þegar niðurstaðan kemur til baka setjum við upplýsingarnar aftur á sinn stað hjá okkur. Í API-kalli getur þú líka tilgreint orð sem eiga ekki að fara til líkananna, til dæmis nöfn viðskiptavina eða verkefna (mask). Nöfn fólks eru ekki fjarlægð á þessu stigi, enda beygjast þau og textinn yrði annars rangur, en þau eru tekin út áður en texti fer í textabankann.
Flutningur út fyrir EES. Sumir þessara aðila eru utan EES. Flutningur til OpenRouter byggir á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í vinnslusamningi OpenRouter, og flutningur til Postmark og Cloudflare á vottun þeirra samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU–U.S. Data Privacy Framework).
Aðgangur
- Notandanafn og lykilorð: lykilorð eru eingöngu geymd sem tætigildi (PBKDF2), aldrei sem hreinn texti.
- Innskráning með Google: ef þú velur þann kost fáum við auðkenni Google-aðgangsins þíns og netfang. Við biðjum ekki um neitt annað frá Google og notum netfangið ekki í markaðsskyni.
- API-lyklar: aðeins tætigildi leynihlutans er geymt. Lykillinn sem
hreinskrift loginsækir er vistaður á tölvunni þinni, en ekki á læsilegu formi hjá okkur. - Aðgangslyklar (passkeys): við geymum aðeins opinbera hluta lykilsins, nafnið sem hann fær, hvort hann er samstilltur milli tækja og hvenær honum var bætt við og hann síðast notaður. Einkalykillinn verður eftir á tækinu þínu og fer aldrei til okkar. Aðgangslyklum eyðir þú undir Stillingum.
- Tengd forrit (t.d. ChatGPT): þegar þú tengir forrit við aðganginn skráum við tenginguna: hvaða forrit, hvaða API-lykil þú valdir, heimildirnar sem þú samþykktir (að laga texta, að sjá stöðu lagfæringa), hvort tengingin megi nota inneign og hvenær hún var gerð. Aðgangs- og endurnýjunarlyklar tengingarinnar eru eingöngu geymdir sem tætigildi. Á meðan þú skráir þig inn og samþykkir geymum við tengibeiðni forritsins, bundna vafranum þínum með leynilykli sem við geymum aðeins sem tætigildi; beiðnin gildir í 15 mínútur og útrunnum beiðnum er eytt reglulega. Þú getur aftengt forrit hvenær sem er undir Tengingum og þá hættir tenging þess að virka strax. Aftenging eyðir ekki notkunar- og bókhaldsfærslum sem þegar hafa orðið til, né skránni um að tengingin hafi verið til.
Notkun og öryggi
Fyrir hvert kall skráum við tímasetningu, lykil, aðgang, IP-tölu, lengd texta, hvaða mállíkön voru notuð, fjölda tóka, áætlaðan kostnað og hvernig kallinu lauk. Þær upplýsingar þarf til að reikna notkun, gera upp inneign og greina misnotkun. Nýskráningar, innskráningar (einnig misheppnaðar) og stofnun og afturköllun lykla eru skráðar með IP-tölu. IP-tölum er eytt eftir 90 daga; annað er geymt vegna kostnaðar- og bókhaldssögu.
Heimsóknir á vefinn
Til að sjá hvernig vefurinn er notaður skráum við heimsóknir á síður, án vefkakna. Fyrir hverja síðu skráum við slóðina, heiti vefsins sem vísaði á hana (aldrei alla vefslóðina), tímabelti og tungumál vafrans, hvort tækið er sími eða tölva og hvort heimsóknin er frá leitarvél eða vélmenni. IP-talan er ekki geymd: gesturinn fær nafnlaust auðkenni sem breytist á hverjum sólarhring, svo ekki er hægt að rekja það til þín eða tengja heimsóknir milli daga. Ef vafrinn þinn biður um að ekki sé fylgst með (Do Not Track eða Global Privacy Control) skráum við ekkert. Heimsóknum er eytt eftir 13 mánuði.
Google Analytics
Ef þú leyfir það mælir Google Analytics (Google Ireland Limited) heimsóknina líka: hvaða síður þú skoðar, hvaðan þú komst og hvers konar tæki og vafra þú notar. Þá setur Google vefkökur í vafrann þinn. Ekkert fer til Google fyrr en þú segir já, og aldrei ef vafrinn biður um að ekki sé fylgst með (Do Not Track eða Global Privacy Control). Google fær aldrei upplýsingar um síður sem eru bara fyrir þig: stjórnborðið, söguna þína eða slóðir með auðkennum. Google fær líka að vita þegar aðgangur er stofnaður og þegar greiðsla tekst, ásamt upphæð og greiðslunúmeri, en aldrei hver þú ert. Við notum ekki auglýsingaeiginleika Google. Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er.
Greiðslur
Greiðslur fara fram á greiðslusíðu Kling (kling.is). Hreinskrift sér aldrei kortanúmer. Við geymum aðeins auðkennin sem Kling úthlutar viðskiptavininum og greiðslumátanum, og heiti kortsins (t.d. „Visa •••• 4242“), svo þú sjáir hvaða kort er vistað. Inneignarfærslur eru skráðar svo þú getir séð hvert inneignin fór.
Vefkökur
Við notum nauðsynlegar vefkökur, og vefkökur Google Analytics aðeins ef þú leyfir það. Engar auglýsingakökur eru notaðar.
portal_token: heldur þér innskráðum. 30 dagar, eða þar til þú skráir þig út.ws: vinnusvæðið sem þú valdir. 1 ár.altalandi_lang: tungumál vefsins. 1 ár.google_oauth: ver innskráningu með Google. 10 mínútur.altalandi_oauth_binding: ver innskráninguna þegar þú tengir ChatGPT eða Claude. 15 mínútur.admin_session: aðeins fyrir kerfisstjóra. 8 klukkustundir._gaog_ga_FS9Q2XS525: Google Analytics, aðeins ef þú leyfir það. 2 ár.
Í vafranum sjálfum (localStorage) eru líka geymdar nokkrar stillingar: hvort þú leyfðir Google Analytics, ljóst eða dökkt útlit, hvort texti megi fara í textabankann, hvort tillögur í prófarkalestri birtast eða eru settar inn strax, hvort þú hafir afþakkað aðgangslykil og auðkenni samtals í spjallinu. Þær eyðast þegar þú hreinsar gögn vafrans.
Samtölin þín eru líka geymd í vafranum. Frá og með 19. október 2026 eru samtölin í verkfærinu, textinn og niðurstöðurnar, geymd í localStorage ásamt verkefnum og festum samtölum, svo að þú finnir þau aftur í hliðarstikunni. Þau eru aðeins í þessum vafra, aðskilin fyrir hvern aðgang, og fara ekki til okkar þaðan. Samtölum þar sem þú valdir „Ekki geyma“ er ekki haldið eftir. Einu samtali eyðir þú í hliðarstikunni og öllum með því að hreinsa gögn vafrans. Á tölvu sem aðrir nota skaltu því skrá þig út og hreinsa gögn vafrans.
Textinn sem þú ert að skrifa í verkfærið er geymdur í flipanum sjálfum (sessionStorage), svo hann tapist ekki ef síðan er endurhlaðin eða þú stofnar aðgang; hann hverfur þegar flipanum er lokað.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að gögnunum þínum og afrit af þeim á tölvulesanlegu formi, fá þau leiðrétt, láta eyða þeim og takmarka vinnslu þeirra. Þú getur andmælt vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum okkar, eins og geymslu í textabankanum, og dregið samþykki til baka hvenær sem er. Lyklum getur þú eytt undir API-lyklum. Sendu beiðni á hallo@hreinskrift.is. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).